Snjöll skref í fjármálum
er ný bók um grunnatriði í fjármálum einstaklinga. Bókin er
skrifuð fyrir ungt fólk sem er að verða fjárráða og að stíga sín fyrstu skref í fjármálum og hentar vel fyrir nemendur sem eru að hefja nám í framhaldsskóla.
Snjöll skref í fjármálum er sjálfstætt framhald af Fysrtu skrefum í fjármálum sem er inngangur að fjármálum og undanfari Farsælla skrefa í fjármálum fyrir nemendur á efri stigum framhaldsskóla og lengra komna.
Frá því bókin kom út sumarið 2024 hafa um 800 bækur verið gefnar til kennara og nemenda.
Efnisyfirlit
Kennarar sem hafa áhuga á að nota bókina í kennslu geta fengið hana frítt fyrir nemendur sína í boði Fjármálavits.
Útbúið hefur verið stuðningsefni fyrir kennara sem samanstendur af glærum og svörum við verkefnum í bókinni.
Kennarar geta sent beiðni á bókarhöfund um aðgang að stuðningsefninu: gunnar.baldvinsson@icloud.com
Farsæl skref í fjármálum
er bók um fjármál einstaklinga og hentar vel fyrir nemendur á efri stigum framhaldsskóla.
Farið er yfir helstu hugtök og aðferðir til að beita við daglega fjármálastjórn, val á sparnaðarleiðum, lántöku og við að undirbúa stóru fjárhagslegu ákvarðanirnar í lífinu. Í bókinni eru sex kaflar auk viðauka með formúlum, sýnidæmum og ítarlegum orðskýringum. Fyrsti kafli er inngangur og sá síðasti lokar bókinni. Yfir 3000 eintök hafa verið afhent til kennara og nemenda.
Efnisyfirlit
Kennarar sem hafa áhuga á að nota bókina í kennslu geta fengið hana frítt fyrir nemendur sína í boði Fjármálavits.
Útbúið hefur verið stuðningsefni fyrir kennara sem samanstendur af glærum og svörum við verkefnum í bókinni.
Kennarar geta sent beiðni á bókarhöfund um aðgang að stuðningsefninu: gunnar.baldvinsson@icloud.com
Hvar er Fjármálavit?
Borgartún 35, 105 Reykjavík
(+354) 6920291
fjarmalavit@fjarmalavit.is