Snjöll skref í fjármálum

er ný bók um grunnatriði í fjármálum einstaklinga. Bókin er
skrifuð fyrir ungt fólk sem er að verða fjárráða og að stíga sín fyrstu skref í fjármálum.
Snjöll skref í fjármálum er þriðja bókin í bókaröð útgefanda um fjármál ungs fólks. Hinar tvær eru Fyrstu skref í fjármálum ,
sem er inngangur að fjármálum einstaklinga og Farsæl skref í fjármálum fyrir nemendur á efri stigum og lengra komna.

Snjöll skref í fjármálum er sjálfstætt framhald af Fysrtu skrefum í fjármálum og undanfari Farsælla skrefa í fjármálum og hentar vel fyrir nemendur sem eru að hefja nám í framhaldsskóla.