Námskeið fyrir kennara
Fjármálavit hefur undanfarin misseri haldið námskeið fyrir kennara á unglingastigi um grunnþætti í fjármálalæsi í samvinnu við sveitarfélögin.
Markmiðið er að kynna aðgengilegar kennsluaðferðir í fjármálalæsi og veita kennurum innblástur í kennslu. Bókin „Fyrstu skref í fjármálum“ er þar til grundvallar og fá þátttakendur bókina að gjöf fyrir sig og nemendur sína.
Kennari námskeiðsins er Kristján Arnarson grunnskólakennari sem hefur kennt stærðfræði í Hagaskóla til fjölda ára. Kristján hefur einnig komið að verkefnum um eflingu fjármálalæsis í grunnskólum og samið námsefni því tengdu.
Nánari upplýsingar:
Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu. Þeir kennarar sem hafa áhuga á að sækja námskeið geta skráð sig hér fyrir neðan. Haft verður samband þegar næsta námskeið verður auglýst.
Hvar er Fjármálavit?
Borgartún 35, 105 Reykjavík
(+354) 6920291
fjarmalavit@fjarmalavit.is