Fyrstu skref í fjármálum

er kennslubók um grunnþætti fjármála einstaklinga eftir Gunnar Baldvinsson og hentar vel í kennslu í fjármálalæsi í efstu bekkjum grunnskóla. Fjármálavit gefur grunnskólum upplag af bókinni sem nemur bekk/árgangi hafi þeir hug á að nýta hana til kennslu.

Á síðustu árum hafa ríflega fjórtán þúsund eintök af bókinni verið send í 150 grunnskóla á landinu. Bókin hefur einnig verið þýdd yfir á enska og gríska tungu og kynnt fyrir kennurum frá fjölmörgum löndum í Evrópu.

Stuðningsefni fyrir kennara

Dæmi um áætlun í fjármálalæsi

Verkefnahefti fyrir kennara

“ Við höfum verið í samvinnu við ykkur undanfarin 3 skólaár og líkað afar vel. Nemendur vinna með bókina og efni hennar yfir rúmlega eina lotu í stærðfræði 10.b að hausti (1,5 mánuður). Frábært framtak og vel heppnað“.

Hvar er Fjármálavit?

Borgartún 35, 105 Reykjavík

(+354) 6920291

fjarmalavit@fjarmalavit.is

Fjármálavit er á

samfélagsmiðlum