Að loknu skyldunámi á einstaklingur að:
- hafa tileinkað sér verðvitund og geta greint á milli og borið saman gæði og verð á vörum og þjónustu
- vera fær um að rýna í auglýsingar með gagnrýnum hætti og greina á milli staðreynda og áróðurs.
- geta borið saman og metið mismunandi framboð lausna þegar kemur að því að versla, t.d. að versla rafrænt eða á staðnum, skoða smáa letrið, passa upp á netöryggi og vera meðvitaður um netþrjóta.
- átta sig á kostum, göllum, hættum og tækifærum mismunandi greiðslumáta við kaup á vöru eða þjónustu. T.d. hvað það þýðir að millifæra peninga á annan aðila, að greiða með greiðslukorti (debet/kredit), að staðgreiða með peningum, að nýta raðgreiðslur, að taka yfirdrátt í banka eða nýta önnur skammtímalán eða smálán.
- geta sett upp einfalda fjárhagsáætlun/sparnaðaráætlun og haft yfirsýn yfir eigin tekjur og gjöld.
- hafa nokkra vitund um hvað það kostar fyrir einstakling að vera til og átta sig á helstu kostnaðarliðum í rekstri heimilis, t.d. hiti og rafmagn, matarinnkaup, samgöngur, tryggingar osv.frv.
- skilja tilgang trygginga og geta gert sér grein fyrir eigin þörfum.
- gera sér grein fyrir almennum réttindum og skyldum á vinnumarkaði sem felur m.a. í sér að geta lesið og skilið ráðningarsamning, hafa skoðun á launum og vinnutíma og skilja hvað stendur á launaseðli, eins og orlofsréttur, lífeyrissjóðsgreiðslur, slysa- og veikindaréttur, skylda til staðgreiðslu tekjuskatts og útsvars frv. Hann þarf auk þess að átta sig á grundvallarmuninum muninum á því að vera launþegi og því að greiða sjálfum sér laun.
- geta metið mögulegar leiðir til að spara fyrir húsnæði, átta sig á því hvað felst í að leigja húsnæði, geta lesið og skilið húsaleigusamning og skilið réttindi og skyldur á leigumarkaði.
- átta sig á samspili tíma og ávöxtunar þegar kemur að sparnaði og lántöku.
- átta sig á mikilvægi sparnaðar og geta greint og borið saman mismunandi sparnaðarform, d. óbundið/bundið, verðtryggt/óverðtryggt, bankareikningur/hlutabréf/sjóður osv.frv.
- þekkja tilgang lífeyrissjóða og valkosti til lífeyrissparnaðar d. viðbótarlífeyrissparnaðar.
- vera almennt fær um að meta mögulega áhættu og ávinning þegar kemur að því að taka ákvarðanir í fjármálum t.d. þegar kemur að því að ráðstafa sparnaði í mismunandi fjárfestingaleiðir.
- vita hvað felst í því að taka lán, hvað þarf að hafa í huga þegar lán er tekið og átta sig á heildarkostnaði við lántöku.
- geta borið saman mismunandi tegundir lána, þekkja grundvallarmun skammtímaláns og langtímaláns og átta sig á hvað felst í stórum skuldbindingum eins og húsnæðislánum og námslánum.
- gera sér grein fyrir vandamálum sem geta komið upp varðandi ákvarðanir í fjármálum, t.d. hvað gerist ef einstaklingur getur ekki greitt af láni og hvaða leiðir standa til boða.
- skilja áhrif breytinga í efnahagsumhverfinu á fjármál einstaklinga, t.d. áhrif yfirvalda og stjórntækja þeirra og þekkja mismunandi gerðir áhrifaþátta eins og stýrivexti, gengi og verðbólgu.
- skilja samhengið milli þjóðarhags og einkaneyslu, opinberra fjármála og eigin fjármála, t.d. af hverju einstaklingar greiða skatta til samfélagsins, hvernig laun eru ákvörðuð osv.frv.