Aur og Áhætta

Fjármálavit gefur grunnskólum landsins eintak af nýju borðspili, Aur og Áhætta.

Borðspilið sem er afurð nýsköpunaráfanga í Verzlunarskóla Íslands, er hugsað sem skemmtilegt uppbrot í skólastarfi en einnig að það nái til sem flestra og þjóni þannig sínum tilgangi að efla almennt fjármálalæsi.

Aur og áhætta er borðspil sem hjálpar leikmönnum að fá innsýn í hlutabréfamarkaðinn og skilja á skemmtilegan máta hvernig viðskipti eiga sér stað, auk þess sem það getur suðlað að aukinni þekkingu á grundvallarhugtökum í fjármálum. Þetta er skemmtilegt spil þar sem leikmenn kaupa fjárfestingar og taka áhættur, en  notast er við svokölluð markaðs- og óvissuspil sem hafa áhrif á það hvernig leikurinn spilast, en allt getur gerst á ófyrirséðum markaði. Spilið er samfélagsleg nýsköpun og gefur leikmönnum tækifæri til þess að finna fyrir sambærilegri tilfinningu og á hlutabréfamarkaði í formi afþreyingar. Stóra spurningin er: Hefur þú hæfnina og heppnina til að sigra markaðinn?

Nánar um spilið hér á Instagrammi Aurs og áhættu.

Fjármálavit gefur hverjum skóla eitt eintak en hægt er að kaupa fleiri eintök af hönnuðum borðspilsins með því að senda beiðni á netfangið: aurogahaetta@gmail.com

Hvar er Fjármálavit?

Borgartún 35, 105 Reykjavík

(+354) 6920291

fjarmalavit@fjarmalavit.is

Fjármálavit er á

samfélagsmiðlum