Fjármálaleikarnir verða haldnir dagana 1 – 8. mars 2024.

Þátttakendur eru nemendur í 10. bekk sem spila í nafni síns skóla og svara fjölbreyttum spurningum.  Það eina sem hver þátttakandi þarf að gera er að skrá sig til leiks þegar spilunartíminn hefst 1. mars á vefslóðinni fjarmalaleikar.is og gefa upp nafn, skóla og árgang.    Ekki þarf að skrá skólann til þátttöku fyrirfram.

Leikurinn stendur yfir til 8. mars og geta þátttakendur svarað hvenær sem er á því tímabili, tekið hlé á spilun og byrjað aftur þar sem frá var horfið. Keppnin er á milli grunnskóla og því skiptir hópeflið máli.

Fjármálavit hvetur kennara til að virkja sem flesta nemendur til þátttöku í fjármálaleikunum og þannig stuðla að frekari vitundarvakningu um mikilvægi fjármálalæsis.

  1. bekkur Austurbæjarskóla sigraði Fjármálaleikana 2023 og í annað sinn sem skólinn sigrar keppnina. Yfir fimmtán hundruð nemendur í 42 grunnskólum víðs vegar af landinu tóku þátt í leikunum og fékk Austurbæjarskóli sem sigurvegari leikanna að senda tvo fulltrúa í Evrópukeppnina í fjármálalæsi sem haldin var í Brussel.

Efstu skólarnir hafa allir allir verið í verðlaunasætum síðustu árin en í öðru sæti var  Grunnskóli Fjallabyggðar sigurvegarinn frá því í fyrra og í þriðja sæti var Tjarnarskóli sem hefur frá upphafi verið ofarlega í úrslitum. Allir þrír skólarnir fengu peningaverðlaun.

 

Á myndinni eru glaðir sigurvegarar Austurbæjarskóla að fagna sigrinum.

Krakkarnir í Grunnskóla Fjallabyggðar hafa staðið sig vel í Fjármálaleikunum undanfarin ár og fagna hér öðru sæti. 

Krakkarnir í Tjarnarskóla fagna góðum árangri í Fjármálaleikunum

Evrópukeppni í fjármálalæsi

Tveir nemendur í sigurskóla í Fjármálaleikanna 2024 munu taka þátt í Evrópuúrslitum í fjármálalæsi í maí 2024 í Brussel sem fulltrúar íslenskra grunnskólanema.

Hér fyrir neðan er hægt að skoða spurningar úr fyrri Evrópukeppnum – spurningar fyrir Ísland eru á íslensku

 

  1. Austurbæjarskóli
  2. Grunnskóli Fjallabygggðar
  3. Tjarnarskóli
  4. Grunnskólinn á Eskifirði
  5. Varmahlíðarskóli
  6. Áslandsskóli
  7. Lundarskóli
  8. Nesskóli
  9. Grunnskóli Hornafjarðar
  10. Giljaskóli

 

  1. Grunnskóli Fjallabyggðar
  2. Eskifjarðarskóli
  3. Vogaskóli
  4. Hrafnagilsskóli
  5. Austubæjarskóli
  6. Árskóli
  7. Árbæjarskóli
  8. Tjarnarskóli
  9. Áslandsskóli
  10. Háaleitisskóli Reykjanesbæ

 

  1. Áslandsskóli
  2. Austurbæjasrkóli
  3. Tjarnarskóli
  4. Vogaskóli
  5. Grunnskóli Fjallabyggðar
  6. Varmahlíðarskóli
  7. Myllubakkaskóli
  8. Árbæjarskóli
  9. Patreksskóli
  10. Snælandsskóli

 

  1. Myllubakkaskóli
  2. Nesskóli
  3. Grunnskólinn í Sandgerði
  4. Giljaskóli
  5. Árbæjarskóli
  6. Tjarnarskóli
  7. Grunnskóli Fjallabyggðar
  8. Austurbæjarskóli
  9. Landakotsskóli
  10. Vatnsendaskóli

 

  1. Nesskóli
  2. Varmahlíðarskóli
  3. Árbæjarskóli
  4. Hlíðaskóli
  5. Garðaskóli
  6. Patreksskóli
  7. Gurnnskóli Fjallabyggðar
  8. Lundarskóli
  9. Sandgerðisskóli
  10. Höfðaskóli

 

  1. Austurbæjarskóli
  2. Háteigsskóli
  3. Varmahlíðarskóli
  4. Vogaskóli
  5. Árbæjarskóli
  6. Sandgerðisskóli
  7. Flóaskóli
  8. Hlíðaskóli
  9. Lækjarskóli
  10. Tjarnarskóli

Sigurvegarar Fjármálaleikanna 2022

1. sæti  Grunnskóli Fjallabyggðar

2. sæti  Eskifjarðarskóli

3. sæti  Vogaskóli

Sigurvegarar Fjármálaleikanna 2021

1. sæti Áslandsskóli

2. sæti Austurbæjarskóli

3. sæti Tjarnarskóli

Sigurvegarar Fjármálaleikanna 2020

1. sæti Myllubakkaskóli

2. sæti Nesskóli

3. sæti Sandgerðisskóli

Sigurvegarar Fjármálaleikanna 2019

1. sæti Nesskóli

Sigurvegarar Fjármálaleikanna 2018

1. sæti  Austurbæjarskóli

Hvar er Fjármálavit?

Borgartún 35, 105 Reykjavík

(+354) 6920291

fjarmalavit@fjarmalavit.is

Fjármálavit er á

samfélagsmiðlum