Evrópukeppni í fjármálalæsi
Vogaskóli, sigurvegari Fjármálaleikanna 2024, sendi tvo nemendur ásamt kennara til Brussel til að taka þátt í úrslitum Evrópukeppninnar í fjármálalæsi sem fram fór 18. – 19. apríl. Evrópukeppnin er árleg keppni í fjármálalæsi milli grunnskóla í Evrópu en það eru Evrópsku bankasamtökin standa að keppninni og eru fulltrúar um þrjátíu Evrópulanda sem taka þátt.
Fulltrúar Vogaskóla og Íslands árið 2024 voru Soffía Hrönn Hafstein og Marinó Máni Harðarson og stóðu þau sig mjög vel. Ísland hafnaði í öðru sæti af norðurlöndunum og í 12. sæti í allri keppninni en það voru Austurríki, Tékkland og Norður Makedónía sem skipuðu þrjú efstu sætin.
Fjármálaleikarnir – úrslit
Aldrei hafa fleiri grunnskólar tekið þátt frá því leikarnir fóru fyrst fram árið 2018 en í ár voru það hátt 1.800 nemendur í 55 grunnskólum víðsvegar á landinu og var mikil keppni um efstu sætin þar sem margir skólar voru að standa sig mjög vel.
Þrjú efstu sætin skipa:
- Vogaskóli
- Austurbæjarskóli
- Grunnskóli Fjallabyggðar
Allir þrír skólarnir fá peningaverðlaun auk þess sem Vogaskóli fær að senda tvo fulltrúa í Evrópukeppni í fjármálalæsi sem fram fer í Brussel 18. og 19. apríl næstkomandi.
Fjöldi þátttakenda svaraði öllum spurningum rétt og úr þeim hópi voru fjórir heppnir dregnir út sem fá hver um sig 30.000 kr. Þeir eru í Eskifjarðarskóla, Hlíðaskóla, Árskóla og Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri.
Megin markmiðið með keppni sem þessari er að leyfa sem flestum nemendum á grunnskólastigi að taka þátt í skemmtilegum leik um fjármál auk þess að minna á mikilvægi góðs fjármálalæsis en kennarar eru almennt mjög duglegir að hvetja sem flesta nemendur til þátttöku í keppninni.
Fjármálavit óskar sigurvegurunum og öllum þeim sem tóku þátt til hamingju með góðan árangur og þakkar fyrir þátttökuna – án þátttakenda er engin keppni!
Vogaskóli fagnaði 1. sætinu með Ásmundi Einari Daðasyni Barna- og menntamálaráðherra. Tveir úr hópnum eru fulltrúar Íslands í Evrópukeppninni í fjármálalæsi.
Austurbæjarskóli hefur verið sigursæll undanfarin ár og fagnar hér 2. sætinu.
Krakkarnir í Grunnskóla Fjallabyggðar stóðu sig vel líkt undanfarin ár og hér taka þau á móti verðlaunafé sem þau segja að komi sér vel fyrir útskriftarferð 10. bekkjar
1. Vogaskóli
2. Austurbæjarskóli
3. Grunnskóli Fjallabyggðar
4. Varmahlíðarskóli
5. Hlíðaskóli
6. Eskifjarðarskóli
7. Fellaskóli, Reykjavík
8. Ölduselsskóli
9. Grunnskólinn í Stykkishólmi
10. Árbæjarskóli
- Austurbæjarskóli
- Grunnskóli Fjallabygggðar
- Tjarnarskóli
- Grunnskólinn á Eskifirði
- Varmahlíðarskóli
- Áslandsskóli
- Lundarskóli
- Nesskóli
- Grunnskóli Hornafjarðar
- Giljaskóli
- Grunnskóli Fjallabyggðar
- Eskifjarðarskóli
- Vogaskóli
- Hrafnagilsskóli
- Austubæjarskóli
- Árskóli
- Árbæjarskóli
- Tjarnarskóli
- Áslandsskóli
- Háaleitisskóli Reykjanesbæ
- Áslandsskóli
- Austurbæjasrkóli
- Tjarnarskóli
- Vogaskóli
- Grunnskóli Fjallabyggðar
- Varmahlíðarskóli
- Myllubakkaskóli
- Árbæjarskóli
- Patreksskóli
- Snælandsskóli
- Myllubakkaskóli
- Nesskóli
- Grunnskólinn í Sandgerði
- Giljaskóli
- Árbæjarskóli
- Tjarnarskóli
- Grunnskóli Fjallabyggðar
- Austurbæjarskóli
- Landakotsskóli
- Vatnsendaskóli
- Nesskóli
- Varmahlíðarskóli
- Árbæjarskóli
- Hlíðaskóli
- Garðaskóli
- Patreksskóli
- Gurnnskóli Fjallabyggðar
- Lundarskóli
- Sandgerðisskóli
- Höfðaskóli
- Austurbæjarskóli
- Háteigsskóli
- Varmahlíðarskóli
- Vogaskóli
- Árbæjarskóli
- Sandgerðisskóli
- Flóaskóli
- Hlíðaskóli
- Lækjarskóli
- Tjarnarskóli
Austurbæjarskóli sigraði Fjármálaleikana árið 2023
Austurbæjarskóli sigraði Fjármálaleikana 2023 og í annað sinn sem skólinn sigrar keppnina. Yfir fimmtán hundruð nemendur í 42 grunnskólum víðs vegar af landinu tóku þátt í leikunum og fékk Austurbæjarskóli sem sigurvegari leikanna að senda tvo fulltrúa í Evrópukeppnina í fjármálalæsi sem haldin var í Brussel.
Efstu skólarnir hafa allir allir verið í verðlaunasætum síðustu árin en í öðru sæti var Grunnskóli Fjallabyggðar sigurvegarinn frá því í fyrra og í þriðja sæti var Tjarnarskóli sem hefur frá upphafi verið ofarlega í úrslitum. Allir þrír skólarnir fengu peningaverðlaun.
Á myndinni eru glaðir sigurvegarar Austurbæjarskóla að fagna sigrinum.
Krakkarnir í Grunnskóla Fjallabyggðar hafa staðið sig vel í Fjármálaleikunum undanfarin ár og fagna hér öðru sæti.
Krakkarnir í Tjarnarskóla fagna góðum árangri í Fjármálaleikunum
Sigurvegarar Fjármálaleikanna 2022
1. sæti Grunnskóli Fjallabyggðar
2. sæti Eskifjarðarskóli
3. sæti Vogaskóli
Sigurvegarar Fjármálaleikanna 2021
1. sæti Áslandsskóli
2. sæti Austurbæjarskóli
3. sæti Tjarnarskóli
Sigurvegarar Fjármálaleikanna 2020
1. sæti Myllubakkaskóli
2. sæti Nesskóli
3. sæti Sandgerðisskóli
Sigurvegarar Fjármálaleikanna 2019
1. sæti Nesskóli
Sigurvegarar Fjármálaleikanna 2018
1. sæti Austurbæjarskóli
Upplýsingar: fjarmalavit@fjarmalavit.is
Hvar er Fjármálavit?
Borgartún 35, 105 Reykjavík
(+354) 6920291
fjarmalavit@fjarmalavit.is