Farsæl skref í fjármálum
er ný bók um fjármál einstaklinga og sjálfstætt framhald bókarinnar Fyrstu skref í fjármálum. Markmiðið er að byggja ofan á grundvallaratriðin og veita gagnleg ráð til að aðstoða lesandann með að verða fjárhagslega sjálfstæður.
Farið er yfir helstu hugtök og aðferðir til að beita við daglega fjármálastjórn, val á sparnaðarleiðum, lántöku og við að undirbúa stóru fjárhagslegu ákvarðanirnar í lífinu. Í bókinni eru sex kaflar auk viðauka með formúlum, sýnidæmum og ítarlegum orðskýringum. Fyrsti kafli er inngangur og sá síðasti lokar bókinni. Meginefni bókarinnar er í 2. til 5. kafla og er fjallað um hvert viðfangsefni á opnu. Hver opna byrjar með ábendingu um helstu atriði fyrir lesendur að tileinka sér. Efni í viðauka styður við umfjöllun í einstökum köflum og opnum.
Þeir framhaldsskólakennarar sem hafa áhuga á að nota bókina í kennslu geta fengið hana frítt fyrir nemendur sína í boði Fjármálavits.
Útbúið hefur verið stuðningsefni fyrir kennara sem samanstendur af glærum og svörum við verkefnum í bókinni.
Kennarar geta sent beiðni á bókarhöfund um aðgang að stuðningsefninu: gunnar.baldvinsson@icloud.com
Hvar er Fjármálavit?
Borgartún 35, 105 Reykjavík
(+354) 6920291
fjarmalavit@fjarmalavit.is