Fjármálaleikar 2026

Dagana 9. – 16. mars 2026 gefst nemendum á unglingastigi í grunnskólum landsins tækifæri til að taka þátt í Fjármálaleikunum, spennandi netkeppni í fjármálalæsi.

Keppni milli grunnskóla

Þátttakendur spreyta sig á fjölbreyttum spurningum um fjármál og keppa í nafni síns skóla, en sá skóli sigrar sem fær hlutfallslega flest stig.

Gangur leiksins

Leikurinn tekur mið af ramma OECD í fjármálafræðslu og byggir á því að svara 48 spurningum í fjórum efnissviðum:  Ég – Heimilið – Nám og atvinna – Samfélagið.

Spurningum er raðað saman í tólf verkefni sem hvert inniheldur fjórar spurningar sem á að svara með sem fæstum tilraunum. Allir keppendur byrja á auðveldasta verkefninu í efnissviðinu Ég. Eftir að hafa klárað það opna þeir aðliggjandi verkefni sem þeir geta unnið. Allir enda svo á erfiðasta verkefninu í efnissviðinu Samfélag.

Keppnin stendur yfir til og með 16. mars og geta þátttakendur svarað hvenær sem er á því tímabili, tekið hlé á spilun og byrjað aftur þar sem frá var horfið. Þar sem keppnin er á milli skóla skiptir hópeflið máli.

Að taka þátt

Það eina sem þátttakendur þurfa að gera er að skrá sig til leiks þegar spilunartíminn hefst 17. mars á vefslóðinni Fjarmalaleikar.is. Nánar um Fjármálaleikana hér.

Verðlaun

Til mikils er að vinna þar sem þrír efstu skólarnir fá peningaverðlaun og fær sigurskólinn að auki að senda tvo fulltrúa í Evrópukeppni í fjármálalæsi sem fram fer í Brussel 18. – 19. maí 2026.

Fjármálavit hvetur kennara til að virkja sem flesta nemendur til þátttöku í fjármálaleikunum og þannig stuðla að frekari vitundarvakningu um mikilvægi fjármálalæsis.

Með því að smella á smápeningana hér fyrir neðan getur þú prófað Fjármálaleikana frá því í fyrra. Þú velur þér skóla og bekk og byrjar.

Skráningin er ekki bindandi.

Ísland tók þátt í Evrópukeppni í fjármálalæsi

Tinna Hjaltadóttir og Steingrímur Árni Jónsson nemendur í 10. bekk Grunnskóla Fjallabyggðar voru fulltrúar Íslands í Evrópukeppni í fjármálalæsi sem fram fór í Brussel 23. maí 2025. Ísland hafnaði í öðru sæti af Norðurlöndunum á eftir Svíþjóð og voru í miðjunni af þeim 30 löndum sem tóku þátt. Sigurvegari keppninnar var lið Ítalíu. Yfir 73.000 nemendur í um 3000 grunnskólum í 30 löndum Evrópu tóku þátt í undankeppnum heima fyrir og þar af hátt í 2.000 nemendur í 60 skólum hér á landi þar sem Grunnskóli Fjallabyggðar bar sigur úr bítum. Keppendur frá Íslandi voru því hlutfallslega mun fleiri en almennt innan Evrópu. Fulltrúar sigurskólanna í hverju landi komu síðan saman til Brussel í Evrópukeppnina.
Tinna og Steingrímur voru glæsilegir fulltrúar Íslands!

 

60 nemendur frá 30 Evrópulöndum komu saman í Brussel og kepptu um Evróputitilinn í fjármálalæsi þar sem lið Ítalíu sigraði.

Myndasafn frá Evrópukeppninni

Úrslit Fjármálaleikanna 2025

Grunnskóli Fjallabyggðar sigrar Fjármálaleikana 2025. Þátttakan var nokkuð góð en um 2000 nemendur í um 60 grunnskólum þvert á landið tóku þátt. Samkeppnin um sætin eykst með hverju árinu og metnaður innan skólanna að standa sig vel einnig. Flestir nemendur sem taka þátt eru að skora hátt!

    Efstu þrjú sætin skipa:

    1. Grunnskóli Fjallabyggðar
    2. Vogaskóli
    3. Hlíðaskóli

Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá mjög góða þátttöku stórra skóla eins og Hagaskóla, Garðaskóla og Árbæjarskóla, en megin markmiðið með keppni sem þessari er einmitt að leyfa sem flestum nemendum að taka þátt í skemmtilegum leik um fjármál og minna á mikilvægi góðs fjármálalæsis.

Þrír efstu skólarnir fá peningaverðlaun auk þess sem Grunnskóli Fjallabyggðar fær að senda tvo fulltrúa í Evrópukeppni í fjármálalæsi sem fram fer í Brussel 22. og 23. maí næstkomandi.

Úr hópi nemenda sem svöruðu öllum spurningum rétt voru tveir heppnir dregnir út sem fá 30.000 kr. hvor og koma þeir úr Hagaskóla og Grunnskólanum í Stykkishólmi.

Grunnskóli Fjallabyggðar fagnaði 1. sætinu ásamt stærðfræðikennaranum Sigurlaugu Rögnu Guðnadóttur, Inga Steinari Ellertssyni Svæðisstjóra hjá Arion banka á Norður – og Austurlandi, Maríu Petru Björnsdóttur og Tinnu Kristjánsdóttir starfsmönnum í útibúi Arion banka í Fjallabyggð.

Vogaskóli hefur verið sigursæll undanfarin ár og fagnar hér 2. sætinu ásamt Rannveigu Möller stærðfræðikennar og Hrafni Guðlaugssyni viðskiptastjóra hjá Sjóvá.

Það voru kátir krakkar í Hlíðaskóla sem tóku við verðlaunum fyrir 3. sætið. Með þeim á myndinni er kennarinn þeirra Elva Dögg Númadóttir, Hrafn Guðlaugsson viðskiptastjóri hjá Sjóvá og Hildur Dröfn Daðadóttir hjá Lífeyrissjóði verzlunarmanna.

Með því að smella á smápeningana hér fyrir neðan getur þú prófað Fjármálaleikana. Þú velur þér skóla og bekk og byrjar.

1. Grunnskóli Fjallabyggðar

2. Vogaskóli

3. Hlíðaskóli

4. Austurbæjarskóli

5. Grunnskólinn í Þorlákshöfn

6. Eskifjarðarskóli

7. Hrafnagilsskól

8. Tjarnarskóli

9. Grunnskólinn í Stykkishólmi

10. Áslandsskóli

 

1. Vogaskóli

2. Austurbæjarskóli

3. Grunnskóli Fjallabyggðar

4. Varmahlíðarskóli

5. Hlíðaskóli

6. Eskifjarðarskóli

7. Fellaskóli, Reykjavík

8. Ölduselsskóli

9. Grunnskólinn í Stykkishólmi

10. Árbæjarskóli

 

  1. Austurbæjarskóli
  2. Grunnskóli Fjallabygggðar
  3. Tjarnarskóli
  4. Grunnskólinn á Eskifirði
  5. Varmahlíðarskóli
  6. Áslandsskóli
  7. Lundarskóli
  8. Nesskóli
  9. Grunnskóli Hornafjarðar
  10. Giljaskóli

 

  1. Grunnskóli Fjallabyggðar
  2. Eskifjarðarskóli
  3. Vogaskóli
  4. Hrafnagilsskóli
  5. Austubæjarskóli
  6. Árskóli
  7. Árbæjarskóli
  8. Tjarnarskóli
  9. Áslandsskóli
  10. Háaleitisskóli Reykjanesbæ

 

  1. Áslandsskóli
  2. Austurbæjasrkóli
  3. Tjarnarskóli
  4. Vogaskóli
  5. Grunnskóli Fjallabyggðar
  6. Varmahlíðarskóli
  7. Myllubakkaskóli
  8. Árbæjarskóli
  9. Patreksskóli
  10. Snælandsskóli

 

  1. Myllubakkaskóli
  2. Nesskóli
  3. Grunnskólinn í Sandgerði
  4. Giljaskóli
  5. Árbæjarskóli
  6. Tjarnarskóli
  7. Grunnskóli Fjallabyggðar
  8. Austurbæjarskóli
  9. Landakotsskóli
  10. Vatnsendaskóli

 

  1. Nesskóli
  2. Varmahlíðarskóli
  3. Árbæjarskóli
  4. Hlíðaskóli
  5. Garðaskóli
  6. Patreksskóli
  7. Gurnnskóli Fjallabyggðar
  8. Lundarskóli
  9. Sandgerðisskóli
  10. Höfðaskóli

 

  1. Austurbæjarskóli
  2. Háteigsskóli
  3. Varmahlíðarskóli
  4. Vogaskóli
  5. Árbæjarskóli
  6. Sandgerðisskóli
  7. Flóaskóli
  8. Hlíðaskóli
  9. Lækjarskóli
  10. Tjarnarskóli

Evrópukeppni í fjármálalæsi 2024

Fulltrúar Íslands í Evrópukeppninni voru Soffía Hrönn Hafstein og Marinó Máni Harðarson úr Vogaskóla sem sigraði Fjármálaleikana 2024. Ísland hafnaði í öðru sæti af norðurlöndunum og í 12. sæti í allri keppninni og er óhætt að segja að við getum verið stolt af okkar fulltrúum. Það voru síðan Austurríki, Tékkland og Norður Makedónía sem skipuðu þrjú efstu sætin.

Fjármálaleikarnir 2024  

Um 1.8nn nemendur í 55 grunnskólum víðs vegar á landinu tóku þátt árið 2024 sem er  metfjöldi frá því leikarnir fóru fyrst fram árið 2018. Keppnin var hörð um efstu sætin þar sem margir skólar voru að standa sig mjög vel.

 Þrjú efstu sætin skipuðu:

  1. Vogaskóli
  2. Austurbæjarskóli
  3. Grunnskóli Fjallabyggðar

Allir þrír skólarnir fengi peningaverðlaun auk þess sem Vogaskóli fær að sendi fulltrúa í Evrópukeppnina í fjármálalæsi sem fram fór í Brussel 18. og 19. apríl 2024.

Fjöldi þátttakenda svaraði öllum spurningum rétt og úr þeim hópi voru fjórir heppnir dregnir út sem fengu hver um sig 30.000 kr. Þetta voru nemendur í Eskifjarðarskóla, Hlíðaskóla, Árskóla og Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri.

    Vogaskóli fagnaði 1. sætinu með Ásmundi Einari Daðasyni Barna- og menntamálaráðherra. Tveir úr hópnum eru fulltrúar Íslands í Evrópukeppninni í fjármálalæsi.

    Austurbæjarskóli hefur verið sigursæll undanfarin ár og fagnar hér 2. sætinu.

    Krakkarnir í Grunnskóla Fjallabyggðar stóðu sig vel líkt undanfarin ár og hér taka þau á móti verðlaunafé sem þau segja að komi sér vel fyrir útskriftarferð 10. bekkjar

    Austurbæjarskóli sigraði Fjármálaleikana árið 2023

    Austurbæjarskóli sigraði Fjármálaleikana 2023 og í annað sinn sem skólinn sigrar keppnina. Yfir fimmtán hundruð nemendur í 42 grunnskólum víðs vegar af landinu tóku þátt í leikunum og fékk Austurbæjarskóli sem sigurvegari leikanna að senda tvo fulltrúa í Evrópukeppnina í fjármálalæsi sem haldin var í Brussel.

    Efstu skólarnir hafa allir allir verið í verðlaunasætum síðustu árin en í öðru sæti var  Grunnskóli Fjallabyggðar sigurvegarinn frá því í fyrra og í þriðja sæti var Tjarnarskóli sem hefur frá upphafi verið ofarlega í úrslitum. Allir þrír skólarnir fengu peningaverðlaun.

    Á myndinni eru glaðir sigurvegarar Austurbæjarskóla að fagna sigrinum.

    Krakkarnir í Grunnskóla Fjallabyggðar hafa staðið sig vel í Fjármálaleikunum undanfarin ár og fagna hér öðru sæti. 

    Krakkarnir í Tjarnarskóla fagna góðum árangri í Fjármálaleikunum

    Sigurvegarar Fjármálaleikanna 2022

    1. sæti  Grunnskóli Fjallabyggðar

    2. sæti  Eskifjarðarskóli

    3. sæti  Vogaskóli

    Sigurvegarar Fjármálaleikanna 2021

    1. sæti Áslandsskóli

    2. sæti Austurbæjarskóli

    3. sæti Tjarnarskóli

    Sigurvegarar Fjármálaleikanna 2020

    1. sæti Myllubakkaskóli

    2. sæti Nesskóli

    3. sæti Sandgerðisskóli

    Sigurvegarar Fjármálaleikanna 2019

    1. sæti Nesskóli

    Sigurvegarar Fjármálaleikanna 2018

    1. sæti  Austurbæjarskóli

    Hvar er Fjármálavit?

    Borgartún 35, 105 Reykjavík

    (+354) 6920291

    fjarmalavit@fjarmalavit.is

    Fjármálavit er á

    samfélagsmiðlum