Námskeið fyrir kennara

Fjármálavit og Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar standa reglulega fyrir námskeiði um grunnþætti í fjármálalæsi fyrir kennara á unglingastigi. Síðasta námskeið var haldið 12. og 13. ágúst síðastliðinn.

Á námskeiðinu kynnast þátttakendur námsefni sem notað hefur verið í ýmsum grunnskólum landsins undanfarin þrjú ár. Bókin „Fyrstu skref í fjármálum“ er þar til grundvallar og fá þátttakendur bókina að gjöf fyrir sig og nemendur sína.

Markmiðið er að kynna aðgengilegar kennsluaðferðir í fjármálalæsi og veita kennurum innblástur í kennslu.

Kennari námskeiðsins er Kristján Arnarson grunnskólakennari sem hefur kennt stærðfræði í Hagaskóla í 9 ár. Kristján hefur einnig komið að verkefnum um eflingu fjármálalæsis í grunnskólum og samið námsefni því tengdu.

Nánari upplýsingar:  fjarmalavit@fjarmalavit.is

Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Hér er hægt að skrá sig á námskeið. Þegar þátttakendur er orðnir tuttugu eða fleiri verður námskeiðið auglýst.