Stafræn námskeið fyrir kennara

Fjármálavit býður kennurum í grunn- og framhaldsskólum á starfræn námskeið í fjármálalæsi. 

Námskeiðunum, sem voru unnin í samstarfi við Opna háskólann í Reykjavík, er ætlað að veita innsýn í það helsta sem fjármál einstaklinga snúast um og veita kennurum innblástur í kennsluaðferðir í fjármálalæsi.

Námskeiðin eru fjögur og má lesa nánar um þau á vef Opna háskólans hér til hliðar

  1. Fjármál heimilis
  2. Sparnaður og fjárfestingar
  3. Lán og lánshæfi
  4. Að kenna fjármálalæsi – stafræn vinnustofa fyrir kennara

Skráning fyrir fríum aðgangi að námskeiðunum er hér fyrir neðan

Að lokinni skráningu fær viðkomandi fljótlega sendan aðgang frá Opna háskólanum í Reykjavík.

Umsjónarmaður námskeiðanna er Kristján Arnarsons sem hefur kennt stærðfræði í Hagaskóla til fjölda ára og komið að ýmsum verkefnum um eflingu fjármálalæsis.

Auk Kristjáns koma við sögu ýmsir sérfræðingar sem fjalla ítarlega um þau viðfangsefni sem þeir eru sérhæfðir í.

Þátttakendum stendur einnig til boða að fá kennslubókina Farsæl skref í fjármálum sem gott er að hafa til hliðsjónar.

Nánari upplýsingar: fjarmalavit@fjarmalavit.is

Að kenna fjármálalæsi –  farið yfir það sem þarf að hafa í huga í kennslu í fjármálalæsi. 

Hvar er Fjármálavit?

Borgartún 35, 105 Reykjavík

(+354) 6920291

fjarmalavit@fjarmalavit.is

Fjármálavit er á

samfélagsmiðlum